Nýr framkvæmdastjóri Landsbréfa hf.


Sigþór Jónsson hefur nú hafið störf sem framkvæmdastjóri Landsbréfa hf.  Sigþór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggildri verðbréfamiðlun. Sigþór hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði og fjárfestingastarfsemi. Síðast gegndi hann starfi forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni hf. og leiddi meðal annars uppbyggingu framtakssjóða Stefnis hf. í atvinnuhúsnæði og fyrirtækjum.