Aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf


Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum Nasdaq OMX á Íslandi að gerast aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf.

Stefnt er að því að aðilar að Nasdaq OMX, sem reiðubúnir eru að gangast undir þær kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerast viðskiptavakar íbúðabréfa þurfi að undirrita samninginn milli kl. 16:00 og 17:00, föstudaginn 28. september 2012 hjá Íbúðalánasjóði, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði.


Attachments

Aðalmiðlarasamningur 2012-2013.pdf ÍLS Reglur um fyrirgreiðslu 2012-2013.pdf