UNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA OG VIÐSKIPTAVAKT Á EFTIRMARKAÐI

Á föstudaginn, 28. september, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Frá 1. október  2012 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., MP banki hf. og Landsbankinn hf.

  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Íbúðalánasjóðs.
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 750 milljónir króna að markaðsverði.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð, að lágmarki skv. eftirfarandi töflu og að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi.
Flokkur Nafnverð
HFF150224 80.000.000
HFF150434 70.000.000
HFF150644 65.000.000
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 500 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
  • Samningurinn gildir frá 1. október 2012 til 30. júní 2013. Þóknun til allra aðalmiðlara íbúðabréfa á samningstímanum verður 100 milljónir króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði og 0,12% þóknun í teknum tilboðum íbúðabréfa.

 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur samningsaðila.


Attachments

Aðalmiðlarasamningur 2012-2013.pdf ÍLS Reglur um fyrirgreiðslu 2012-2013.pdf