Fjárhagsáætlun 2013 – 2016


Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 7. nóv.. 2012 og henni vísað til seinni umræðu sem verður þann 21. nóv. n.k..  Jafnframt er  lögð fram 3ja ára áætlun fyrir árin 2014 – 2016.

 

Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:

 

  • Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður afgangur af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.

 

  • Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður framlegðarhlutfall A-hluta 19% og í samstæðu A og B hluta 24%.

    

  • Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
             
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 mun veltufé frá rekstri nema 505 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 422 millj. kr. í samstæðu A og B hluta.  Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 360 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 334 millj. kr.
       
        
  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður skuldahlutfall A-hluta  191% og samstæðu A og B hluta um 250%.
    • Árið 2016 verður skuldahlutfall A hluta um 155% og í samstæðu A og B hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 213%.

 

Mikilvægt er að framagreind viðmið verði tekin alvarlega og var því lögð áhersla á það við vinnu fjárhagsáætlunar 2013 að hún yrði löguð að þeim. Slík aðlögun er liður í því að laga rekstur sveitarfélagsins að breyttum aðstæðum, treysta fjárhag þess og gera það betur í stakk búið til að mæta þörfum íbúanna í framtíðinni.

 

Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins að farið verði af stað með byggingu á hjúkrunarheimili og verði á árunum 2013 og 2014 varið 1.100 millj. kr. til þess verkefnis.  Á móti koma framlög  frá ríkisvaldinu á næstu 40 árum í formi leigugreiðslna til að mæta stofnkostnaði.

 

Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og búa öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA.

 

Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri

 


Attachments

Fjárhagsáætlun 2013 og 2015-2016.pdf