CORRECTION: Vegna fréttar í Viðskiptablaðinu í morgun um málefni Íbúðalánasjóðs vill Íbúðalánasjóður koma eftirfarandi á framfæri:


 

    • Af frétt Viðskiptablaðsins má ráða að Íbúðalánasjóður vinni að því að breyta skilmálum útgefinna skuldabréfa sjóðsins. Slíkt er ekki framkvæmanlegt og verður aldrei gert án samstarfs við eigendur bréfanna. Það er rangt að Íbúðalánasjóður vinni að slíkum breytingum.
    • Fyrirætlanir sjóðsins varðandi útgáfu fjármögnunarbréfa hans í formi nýrra flokka til framtíðar byggja á því að sú fjármögnun verði uppgreiðanleg.