Viðskiptavakt Íbúðabréfa liggur niðri í dag fimmtudaginn 22. nóvember 2012


Vegna þeirrar óvissu, sem skapaðist af fréttaflutningi Viðskiptablaðsins í morgun um skilmálabreytingar á Íbúðabréfum (sjá nánar tilkynningu Íbúðalánasjóðs frá því í morgun), hefur verið ákveðið að viðskiptavakt með Íbúðabréf muni liggja niðri í dag. Viðskiptavakt fer af stað með eðlilegum hætti í fyrramálið.