Lokun skráðra sjóða hjá Landsbréfum


„Í kjölfar lokunar Kauphallar á viðskiptum með Íbúðabréf nú í morgun taldi stjórn Landsbréfa hf. hagsmuni sjóðfélaga í sjóðum Landsbréfa hf. sem eiga Íbúðabréf útgefin af Íbúðalánasjóði, best tryggða með því að loka á viðskipti með hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum á meðan óvissa ríkti um verðmyndun undirliggjandi eigna. 

Ákvörðunin verður endurskoðuð um leið og væntanleg frétt verður opinber.

 

Um er að ræða eftirtalda skráða sjóði Landsbréfa:

Markaðsbréf, kt. 670898-9469

Sparibréf löng, kt. 600390-9379“