HS Veitur fjármögnun


Stjórn HS Veitna hf. hefur áhuga á að endurfjármagna skuldabréfaflokk félagsins (HSVE 08 01), sem skráður er á Nasdaq OMX Iceland, með það að markmiði að afborgunarferli hans falli betur að rekstrinum, en í dag er skuldabréfaflokkurinn vaxtagreiðslubréf með gjalddaga höfuðstóls 15. desember 2018.

Stjórn félagsins hefur falið Deloitte Fjármálaráðgjöf ehf. að veita félaginu aðstoð við að skoða mögulega endurfjármögnun og vera tengiliður félagsins við núverandi eigendur skuldabréfaflokks.

Stjórn HS Veitna hf. óskar eftir því að skuldabréfaeigendur hafi samband við Deloitte Fjármálaráðgjöf ehf. til að nálgast tilboðsdrög á netfangið hsve12@deloitte.is.