Tilkynning frá Ríkisútvarpinu vegna útboðs um stafrænt dreifikerfi sjónvarps


Með vísan til tilkynningar RÚV til Kauphallarinnar þann 18. janúar sl. um að velja tilboð frá Fjarskiptum hf. (Vodafone) í útboði nr. 15233 um stafrænt dreifikerfi sjónvarps skal upplýst að hinn tilboðsgjafinn hefur kært útboðsferlið til kærunefndar útboðsmála. Af þeim sökum mun gerð samnings tefjast umfram það sem ráðgert var í fyrri tilkynningu.