Ársreikningur Reykjaneshafnar 2012


Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2012 og fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur af hafnarstjórn 06. mars 2013.

 

               Fjárhags-
  2012 2011              áætlun 2012
       
Rekstrartekjur 180.968.292 279.695.668    329.680.000
Rekstrargjöld 198.825.912 219.577.839     203.578.000
Hagnaður fyrir afskriftir   28.389.209  109.094.372     163.870.000
Rekstrarniðurstaða  (17.857.620)   60.117.829     126.102.000
Tap ársins ( 667.074.903) ( 557.441.291)                ( 506.096.000)
       
Eignir             31.12. 2012              31.12. 2011                      áætlun 2012
Fastafjármunir  2.706.305.146  2.691.181.100   2.847.579.000
Veltufjármunir            178.513.242            320.207.654                     271.547.000
Eignir   2.884.818.388   3.011.388.754   3.119.126.000
       
Eigið fé og skuldir            31.12. 2012             31.12. 2011        áætlun 2012
       
Eigið fé ( 3.851.709.467) ( 3.231.818.167) ( 3.608.685.000)
       
Langtímaskuldir og skuldbindingar    6.341.670.384    5.736.130.310  6.158.490.000
Skammtímaskuldir       394.857.471       507.076.611    569.321.000
Skuldir         6.736.527.855         6.243.206.921  6.727.811.000
                                                Eigið fé og skuldir  
         2.884.818.388
         3.011.388.754                    3.119.126.000
       
             31.12. 2012          31.12. 2011     áætlun 2012
       
Handbært fé til rekstrar           (202.043.266)            143.496.757)  151.420.000
Veltufé til rekstrar (286.417.936)  (386.694.855)  314.157.000

 

 

Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga.

Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar.

Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2012 námu 181 millj. kr. og rekstrargjöld kr. 152,6 m.kr. og þar af laun 65,4 m.kr. samkvæmt  ársreikningi.  Hagnaður fyrir afskriftir 28,4 m.kr.  Afskriftir 46,2 m.kr. fjármunatekjur og –gjöld  649,2 mkr. en tap ársins 667,1 mkr.

Framkvæmdir voru óverulegar á árinu 2012, unnið við gatnagerð, lóðir og fjárfest fyrir 12,1 m.kr.


Framtíðarsýn:

Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 og en reiknað með úthlutun lóða á árinu 2013 m.a. hjá AGC ehf. með glýkólverksmiðju. 

Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 270 þúsund tonna álver í áföngum.  Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við hann í  maí 2008.  Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á árinu 2014. 

Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.

Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 20112 og skuldir sem nema um 6,7 milljörðum króna, mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum.  Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um 4,5 milljarðar kr. 

Eftir endurfjármögnun langtímalánanna á árinu 2011, þá er áætlað að rekstur hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar.  Í þeim áætlunum sem unnið er með gagnvart lánveitendum er gert fyrir að byggingarframkvæmdir við kísilver fari af stað sumarið 2013 og rekstur hefjist í byrjun ársins 2015 .

Einnig vekur nýtt boð ríkisstjórnarinnar, sem felur fjármála- og efnahagsráðherra að hefja viðræður um aðkomu ríkisins að hafnarframkvæmdum í Helguvík, væntingar um að Helguvík njóti sama fjárstuðning ríkissjóðs og uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka í Norðurþingi.

 


Attachments

Kauphöll fréttatilkynning ársreiknings 2012.pdf Ársreikningur Reykjaneshafnar 2012.pdf