Endurfjármögnun Kópavogsbæjar


Í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti og með vísan í tilkynningu frá 8. febrúar sl. um endurfjármögnun á eingreiðsluláni frá Dexia Crédit Local að fjárhæð EUR EUR 35.000.000 er það staðfest að bærinn hefur náð samkomulagi við lánveitanda um framlengingu á EUR 10.000.000, til að dreifa kaupum á gjaldeyri fram á haustið 2013. Eftirstöðvarnar verða greiddar með tveimur jöfnum afborgunum þann 30. ágúst 2013 og 30. september 2013.

Einnig hefur bærinn gert samkomulag við innlendan banka um aðgang að skammtíma lánalínu fyrir allt að EUR 10.000.000 einnig í þeim tilgangi að draga úr þörf á gjaldeyriskaupum nú á vormánuðum. Verði þessi lánalína notuð, þá verður hún uppgreidd fyrir haustið 2013.