Niðurstöður aðalfundar Reita II


Föstudaginn 5. apríl 2013 kl. 11:00 var haldinn aðalfundur hjá Reitum II  á skrifstofu félagsins í Kringlunni í Reykjavík.

 

Hér má sjá helstu niðurstöður fundarins:

 

  1. Ársreikningur og skýrsla stjórnar voru samþykkt.

 

  1. Samþykkt var tillaga um að greiða ekki út arð vegna ársins 2012.

 

  1.   KPMG hf. var endurkjörið sem endurskoðendur félagsins.

 

  1. Samþykkt var tillaga um að breyta fjölda stjórnarmanna úr þremur í einn.
  • Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags hf., var kjörinn sem stjórnarmaður 
  • Elín Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia ohf., var kjörin sem varamaður.

 

  1. Samþykkt var tillaga  um að starfskjarastefna félagsins verði sú sama og hjá móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf.

 

  1. Samþykkt var tillaga um að stjórnarmenn fái áfram enga þóknun fyrir störf sín.