Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2012

AFGANGUR AF REKSTRI MOSFELLSBÆJAR


Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2012 var lagður fram í bæjarráði í dag og honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 

Rekstur Mosfellsbæjar gekk vel á árinu 2012 og var rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði  um 612 milljónir sem er um 10% af tekjum. Niðurstaðan er í samræmi við fjárhagsáætlun. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var afgangur af rekstri bæjarins um 29 milljónir eða 0,4% af tekjum.

Íbúar Mosfellsbæjar voru 8.978 um síðustu áramót og hafði fjölgað um 1,4% á milli ára.

Hófleg skuldsetning

Kennitölur úr rekstri bera vott um trausta stöðu bæjarsjóðs. Veltufé frá rekstri eru 676 milljónir sem eru 11% af rekstrartekjum og framlegð frá rekstri er 15%. Skuldahlutfall er 125% sem er vel innan þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum. Eigið fé í árslok nemur 3.921 milljónum og er eiginfjárhlutfall 31%.

68% af skatttekjum fara í fræðslu-, félags- og íþróttamál

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 2.343 milljónir á árinu 2012 eða um 49% af skatttekjum. Til félagsþjónustu var veitt 1.015 milljónum og eru þar meðtalin málefni fatlaðs fólks. Íþrótta- og æskulýðsmál eru þriðja stærsta verkefni bæjarins en til þeirra mála var varið um 563 milljónum á árinu 2012.

Mikil uppbygging í Mosfellsbæ

Um 767 milljónum var varið í framkvæmdir á árinu 2012 sem er nær tvöföldun frá fyrra ári.  Stærsta einstaka framkvæmdin er bygging nýs 30 rýma hjúkrunarheimils sem verður tekið í notkun innan tíðar. Til þeirrar framkvæmdar runnu um 276 milljónir á árinu en áætlaður byggingarkostnaður er um 811 milljónir.

Í Mosfellsbæ rís einnig um þessar mundir nýr framhaldsskóli sem byggður er í samstarfi við ríkið en í þá framkvæmd fór um 121 milljón á árinu 2012. Rúmar 192 milljónir fóru í gatnaframkvæmdir og einnig var talsverðu fjármagni varið í viðhald og endurbætur á skólahúsnæði og íþróttaaðstöðu í bænum. Þrátt fyrir þessar miklu framkvæmdir í sveitarfélaginu lækkar skuldahlutfall milli ára.

Reikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 17. apríl og til síðari umræðu 30. apríl.

 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 862 0012


Attachments

Ársreikningur Mosfellsbær 2012 -.pdf