Fréttatilkynning 15. april 2013


 

HS Veitur hf. Endurfjármögnun

Stjórn HS Veitna hf. hefur ásamt Deloitte Fjármálaráðgjöf ehf. unnið að endurfjármögnun skuldabréfalokks HS Veitna hf., HSVE 08 01 sem skráður er á NASDAQ OMX Iceland hf. Tilgangur endurfjármögnunarinnar er að afborgunarferli skuldabréfa útgefnum af HS Veitum hf. falli betur að rekstri  félagsins.

Í fréttatilkynningu HS Veitna hf. sem birt var í fréttakerfi NASDAQ OMX Iceland hf. þann 11. desember 2012, voru skuldabréfaeigendur í flokknum HSVE 08 01 hvattir til þess að hafa samband við Deloitte fjármálaráðgjöf ehf. til að nálgast tilboðsdrög. Eftir að hafa fengið viðbrögð skuldabréfaeigenda hefur stjórn HS Veitna hf. ákveðið að gefa út nýjan skuldabréfaflokk HSVE 13 01 sem sótt verður um að tekinn verði til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. fyrir árslok 2013.

HS Veitur hf. bjóða öllum eigendum skuldabréfaflokksins HSVE 08 01 að kaupa í nýjum skuldabréfaflokki HSVE 13 01 og greiða fyrir með HSVE 08 01. HS Veitur hf. bjóðast til að kaupa HSVE 08 01 miðað við uppreiknað nafnverð flokksins þann 18. apríl 2013 ásamt áföllnum vöxtum frá 15. desember 2012-17. apríl 2013, sem hefur í för með sér að fyrir hverja eina krónu nafnverðs í HSVE 08 01 fá skuldabréfaeigendur 1,3955 krónur að nafnverði í HSVE 13 01.

HSVE 13 01 eru jafngreiðslubréf, verðtryggð með neysluverðsvísitölu til 20 ára. Þau bera fasta 3,75% ársvexti. Höfuðstóll og vextir greiðast með 40 jöfnum greiðslum (e. annuity) í fyrsta sinn 15. desember 2013 og á sex mánaða fresti þar á eftir. Nánari skilmála HSVE 13 01 er að finna í viðhengi.

Stjórn HS Veitna hf. hefur gert það að skilyrði fyrir útgáfu nýja skuldabréfaflokksins að eigendur a.m.k. 67,5% skuldabréfaflokksins HSVE 08 01 gangi að tilboðinu.

Markaðsviðskipti Landsbankans munu sjá um framkvæmd skiptanna og er skuldabréfaeigendum sem eiga bréf í flokki HSVE 08 01 bent á að hafa samband við Markaðsviðskipti Landsbankans í síma 410 7330. Óskað verður eftir afstöðu skuldabréfaeigenda HSVE 08 01 til skiptanna fyrir klukkan 15:00 miðvikudaginn 17. apríl 2013. Útgáfa HSVE 13 01 mun miðast við fimmtudaginn 18. apríl 2013.

Tilkynnt verður um niðurstöðu tilboðsins eftir lokun markaða þann 18. apríl 2013.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf. s. 422-5200

 

  

 


Attachments

Útgáfulýsing skuldabréfs HSVE 13 01.pdf