Framlenging á fresti til þess að samþykkja skipti á skuldabréfaflokkunum HSVE 08 01 og HSVE 13 01


Ákveðið hefur verið að framlengja frest sem eigendur skuldabréfaflokksins HSVE 08 01 hafa til að tilkynna um afstöðu sína til skipta á skuldabréfum sínum í flokknum HSVE 08 01 fyrir skuldabréf í nýjum flokki HSVE 13 01 og tilkynnt var um í fréttatilkynningu HS Veitna hf. til Kauphallarinnar þann 15. apríl 2013 ásamt leiðréttingum á viðhengi með fréttatilkynningunni sem birtar voru 16. og 17. apríl 2013.

Upphaflegur frestur var til klukkan 15:00 miðvikudaginn 17. apríl 2013 og hefur hann verið framlengdur til klukkan 22:00 miðvikudaginn 17. apríl 2013. Félagið mun birta fréttatilkynningu í Kauphöll með niðurstöðu tilboðsins fyrir opnun markaða fimmtudaginn 18. apríl 2013.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf. s. 422-5200