Mosfellsbær gefur út nýjan skuldabréfaflokk


Mosfellsbær hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk með auðkennið MOS 13 1. Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf til 21 árs með greiðslu afborgana og vaxta á 6 mánaða fresti. Gefnar eru út 600 milljónir að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,05% en samkvæmt skilmálum er hægt að stækka flokkinn frekar.

Skuldabréfaflokkurinn MOS 13 1 verður gefinn út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. miðvikudaginn 3. júlí 2013. Skv. skilmálum verða bréfin tekin til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. fyrir árslok 2013.

H.F. Verðbréf hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Sími: 525-6700