Landsbréf – Útboðslýsing og reglur Landsbréf-LEQ


Meðfylgjandi eru útboðslýsing og reglur Landsbréf-LEQ.

 

Landsbréf - LEQ, kt. 681212-9300, er verðbréfasjóður sem starfræktur er í samræmi við ákvæði II. kafla í lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. Sjóðurinn er ennfremur vísitölusjóður sbr. 36 gr. sömu laga.

Hlutverk sjóðsins er að veita viðtöku fé til sameiginlegrar fjárfestingar í hlutabréfum  sem endurspegla samsetningu OMX Iceland 6 PI Cap ISK vísitölunnar (OMXI6CAPISK) sem NASDAQ OMX á Íslandi reiknar á grundvelli áhættudreifingar samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu.

Rekstrarfélag sjóðsins í skilningi I. kafla laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði eru Landsbréf hf., kt.: 690812-0520. Félagið er dótturfélag Landsbankans hf.

Landsbankinn hf. annast umsjá og varðveislu fjármálagerninga sjóðsins í samræmi við  II. kafla C laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.

Endurskoðandi Landsbréfa - LEQ og Landsbréfa hf., rekstrarfélags sjóðsins, er  KPMG ehf., 590975-0449, Borgartúni 27, 105 Reykjavík.


Attachments

Útboðslýsing_Landsbréf_LEQ_01082013.pdf Reglur Landsbréf_LEQ - 01082013.pdf