Árshlutauppgjör Landsbréfa 30.06.2013

53 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi 2013 - eignir í stýringu jukust um 19% og námu tæpum 100 milljörðum


Landsbréf hafa birt árshlutareikning vegna fyrri árshelmings 2013.  Í lok júní önnuðust Landsbréf hf. rekstur 27 sjóða og félaga um sameiginlega fjárfestingu og voru eignir í stýringu um 99 milljarðar króna og höfðu aukist um 19% það sem af er ári. Alls eru um 12 þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í sjóðum eða í eignastýringu hjá Landsbréfum.

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 53 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2013, samanborið við 7 milljóna króna hagnað fyrir allt rekstrarárið 2012.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 434 milljónum króna á tímabilinu, en námu 438 milljónum króna allt rekstrarárið 2012. 
  • Á aðalfundi félagsins var ákveðið að auka eigið fé félagsins um 750 milljónir króna með hækkun hlutafjár og var það greitt inn á tímabilinu.
  • Eigið fé Landsbréfa í lok júní nam um 1.510 milljónum króna og var eiginfjárhlutfall 94,8%, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0% samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. 

Landsbréf bjóða mjög fjölbreytt og vaxandi úrval sjóða. Umsvif í rekstri framtakssjóða hafa aukist verulega það sem af er ári. Má þar nefna sérstaklega Horn II slhf. sem er 8,5 milljarða króna framtakssjóður sem fjárfestir í öllum geirum íslensks atvinnulífs og einnig Landsbréf – Icelandic Tourism Fund I slhf. (ITF I) sem er rúmlega tveggja milljarða króna framtakssjóður sem sérhæfir sig í fjárfestingum tengdum ferðaþjónustu, einkum nýrri afþreyingu fyrir ferðamenn. Eignir í stýringu í framtakssjóðum Landsbréfa voru í lok júní 2013 alls um 38 milljarðar króna og þar af eru nýjar eignir í stýringu 10,5 milljarðar króna.

Landsbréf reka tvo hlutabréfasjóði, sem fjárfesta á íslenskum hlutabréfamarkaði, Landsbréf - Úrvalsbréf og Landsbréf - Öndvegisbréf. Ávöxtun Úrvalsbréfa á tímabilinu var 11,0% eða 4,9% umfram OMXI6ISK vísitöluna, sem er viðmið sjóðsins.  Sjóðurinn var 7,7 milljarðar króna í lok tímabilsins. Ávöxtun Öndvegisbréfa var 11,9% eða 4,3% umfram OMXIPI vísitöluna, sem er viðmið sjóðsins. Sjóðurinn var 3,2 milljarðar króna í lok tímabilsins.  Sjóðirnir tveir stækkuðu um 54% á tímabilinu eða um 3,8 milljarða króna.

Tveir erlendir hlutabréfasjóðir eru í rekstri Landsbréfa og var ávöxtun Landsbréf – Global Equity Fund -0,3% á tímabilinu sem er 3,6% minni en MSCI World Index vísitalan sem er viðmið sjóðsins.  Sjóðurinn var 2,8 milljarðar króna í lok tímabilsins. Ávöxtun Landsbréf – Nordic 40 var tæp 4% á tímabilinu sem er rúmum 2% meira en ávöxtun OMXN40 vísitölunnar sem er viðmið sjóðsins. Sjóðurinn var 960 þúsund evrur í lok tímabilsins.

Landsbréf reka nokkra ríkisskuldabréfasjóði og hefur ávöxtun þeirra verið mjög góð það sem af er ári. Landsbréf - Sparibréf óverðtryggð voru til að mynda með hæstu ávöxtun allra ríkisskuldabréfasjóða fyrstu sex mánuði ársins eða 6,1%. Aðrir Sparibréfasjóðir hafa einnig náð góðum árangri og oftar en ekki gefið betri ávöxtun en sambærilegir sjóðir. Sjóðirnir hafa minnkað lítillega það sem af er ári og stafar það af færslu í aðra eignaflokka.

Landsbréf reka einn sjóð, Landsbréf - Markaðsbréf, sem fjárfestir í dreifðu safni skuldabréfa útgefnum af ríki, sveitarfélögum, fjármálastofnunum og öðrum fyrirtækjum. Innflæði hefur verið töluvert í sjóðinn samhliða aukinni útgáfu og stækkaði sjóðurinn um rúm 33% á fyrri hluta ársins. Ávöxtun sjóðsins hefur verið mjög góð og er hann með bestu ávöxtun blandaðra skuldabréfasjóða eða 4,4%.

Landsbréf reka þrjá blandaða sjóði; Landsbréf – Eignabréf, Landsbréf – Einkabréf B og Landsbréf – Einkabréf C sem fjárfesta í nokkrum eignaflokkum, einkum skráðum hlutabréfum og skuldabréfum. Tveir af sjóðunum þremur voru stofnaðir á þessu ári. Blönduðu sjóðirnir hafa nú náð rúmum milljarði króna í stærð. Ávöxtun Eignabréfa var um 8,5% sem er vel yfir viðmiðum.  Einkabréfasjóðirnir störfuðu ekki allt tímabilið en ávöxtun þeirra er yfir viðmiðum.

Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa hefur gengið vel það sem af er ári og hafa sjóðir félagsins skilað góðum árangri fyrir fjárfesta. Mikið starf hefur verið unnið á árinu við þróun nýrra afurða og má nefna sem dæmi  að Landsbréf luku fjármögnun framtakssjóðanna Horn II og ITF I fyrir yfir 10,5 milljarða króna sem búast má við að verði virkir í íslensku atvinnulífi á næstu árum. Þann 15. ágúst var kauphallarsjóðurinn Landsbréf – LEQ tekinn til viðskipta í kauphöllinni en kauphallarsjóðir hafa notið vaxandi vinsælda erlendis og er ekki ástæða til að ætla annað en að þróunin verði á sama veg hér á landi. Þá fengu Landsbréf góða viðurkenningu nú í sumar þegar Tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta valdi Landsbréf hf. sem einn þriggja aðila til að stýra eignum sjóðsins. Var sú ákvörðun tekin að undangengnu útboði og ítarlegu hæfismati á tíu fjármálafyrirtækjum sem sóttumst eftir því verkefni. Landsbréf hafa nú um 100 milljarða í stýringu og hafa markað sér sess sem vaxandi rekstrarfélag á íslenskum verðbréfamarkaði þar sem félagið leitast við að vera hreyfiafl í íslensku samfélagi sem með virkri eignastýringu brúar bilið á milli sparnaðar og fjármögnunar.“

Frekari upplýsingar veitir Sigþór Jónsson í síma 410 2500.

 


Attachments

Landsbréf hf. árshlutauppgjör 30.6.2013.pdf