- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. janúar 2013 til 30. júní 2013 nam kr. 120,6 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2012 til 30. júní 2012 nam 33,9 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2013 til 30. júní 2013 nam 109,9 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 66,5 m.kr.
- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 627 mkr. (2011:655 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu 1. janúar 2012 til 31. desember 2012 og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2012 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.
- Veggjald nam 508 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 483 m.kr. árið áður sem er 5% hækkun.
- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 177 m.kr. og hækkar um rúmar 11 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 166 m.kr.
- Afskriftir á tímabilinu námu samtals 59 m.kr. Samanborið við 58 m.kr. frá árinu áður.
- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 38,4 m. kr.
- Skuldir Spalar ehf hækka úr 3.821 m.kr. þann 31. desember 2012 í 4.022 m.kr. þann 30. júní 2013.
- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.
Um uppgjörið
Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu aðeins meiri en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Sama gildir fyrir árið í heild miðað við síðasta ár.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.