Afkoma Reita II ehf. á fyrri árshelmingi 2013


Hagnaður Reita II ehf. á fyrri árshelmingi ársins 2013 nam 100 milljónum króna samanborið við 3.001 milljóna króna tap á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 574 milljónum króna samanborið við 576 milljónir króna árið áður.

Breytingu í afkomu félagsins má að miklu leyti rekja til endurmats á fjárfestingareignum félagsins en matsbreyting Reita II á fyrstu sex mánuðum ársins var 487 milljónir en hún var neikvæð um 2.381 milljón krónur á sama tíma árið áður

Í lok júní 2013 var eigið fé Reita II 72 milljónir króna en það var neikvætt um 27 milljónir króna á sama tíma árið áður. Væntingar stjórnar og stjórnenda eru þær að eigið fé félagsins verði aukið umtalsvert samhliða endurfjármögnun og sölu á nýju hlutafé í móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi.

Lykiltölur:

  • Heildareignir námu 20.164 milljónum króna þann 30. júní 2013.
  • Eigið fé félagsins nam 72 milljónum króna á sama tíma.
  • Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 832 milljónum króna samanborið við 826 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 8 dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags. Upplýsingar um afkomu móðurfélagsins, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson fjármálastjóri í síma 575 9000 eða 669 4416 (einar@reitir.is).


Attachments

Reitir II árshlutareikningur 30.06.2013.pdf Afkoma Reita II ehf. á fyrri árshelming 2013.pdf