Meðfylgjandi eru útboðslýsing og reglur Landsbréfa-LREAL.
Landsbréf - LREAL, kt. 681212-9570, er verðbréfasjóður sem starfræktur er í
samræmi við ákvæði II. kafla í lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og
fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. Sjóðurinn er ennfremur vísitölusjóður sbr. 36 gr.
sömu laga.
Hlutverk sjóðsins er að veita viðtöku fé til sameiginlegrar fjárfestingar í skuldabréfum
sem endurspegla samsetningu NOMXIREAL vísitölunnar (NASDAQ OMX Iceland
Inflation-linked Benchmark Bonds), sem NASDAQ OMX á Íslandi reiknar, á grundvelli
áhættudreifingar samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu.
Rekstrarfélag sjóðsins í skilningi I. kafla laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði
og fagfjárfestasjóði eru Landsbréf hf., kt.: 691208-0520. Félagið er dótturfélag Landsbankans hf.
Landsbankinn hf. annast umsjá og varðveislu fjármálagerninga sjóðsins í samræmi við
II. kafla C laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.
Endurskoðandi Landsbréfa - LREAL og Landsbréfa hf., rekstrarfélags sjóðsins, er
KPMG ehf., 590975-0449, Borgartúni 27, 105 Reykjavík.