Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 og þriggja ára áætlun 2015-2017


Fimmtudaginn 31. október 2013 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2014 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2015-2017.  Seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2014 og þriggja ára áætlun 2015-2017 verður þann 21. nóvember n.k.

Rekstrarafgangur samstæðu A og B hluta á árinu 2014 fyrir fjármagnsliði nemur 860 m.kr.  Þar af er rekstrarafgangur A hluta 381 m.kr.  Að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrarafgangur hjá samstæðu A og B hluta að fjárhæð 430 m.kr. og þar af rekstrarafgangur í A hluta að fjárhæð 82 m.kr.  Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir rekstrarafgangi hjá A hluta öll árin sem B hluta. 

Eigið fé samstæðu nemur 1.746 m.kr. í árslok 2014 og eiginfjárhlutfall 15,5%.  Í árslok 2017 er gert ráð fyrir að eigið fé samstæðu nemi 3.008 m.kr. og eiginfjárhlutfallið verði um 26%.  Í A hluta er eigið fé neikvætt um 558 m.kr. í árslok 2014.  Jákvæð afkoma í A hluta í þriggja ára áætlun styrkir eigið fé sem er í árslok 2017 neikvætt um 221 m.kr.

Handbært fé frá rekstri í samstæðunni nemur 1.144 m.kr. á árinu 2014, fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 678 m.kr. og afborganir langtímalána 620 m.kr.  Handbært fé í samstæðu verður 422 m.kr. í árslok 2014 og lækkar um 86 m.kr. frá ársbyrjun. Í þriggja ára áætlun nemur handbært fé frá rekstri í samstæðu á árunum 2015-2017 samtals 3.594 m.kr. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum eru samtals áætlaðir 1.689 m.kr. og afborganir langtímalána samtals 1.868 m.kr. Gert er ráð fyrir 700 m.k. lántöku til endurfjármögnunar á láni að upphæð 800 m.kr. á árinu 2016.  Þá er handbært fé í árslok 2017 áætlað 566 m.kr.

Skuldir og skuldbindingar samstæðu, sem hlutfall af heildartekjum, er áætlað 182,5% í árslok 2014 og 163,4% í árslok 2017.  Sveitarfélagið hefur verið í góðum samskiptum við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldastöðu sveitarfélagsins. Framlegðarhlutfall (EBIDTA) er áætlað 25% í samstæðu og í kringum 11-13% í A-hluta á tímabilinu 2014 – 2017 og helst nokkuð stöðugt í langtímaáætlunum sveitarfélagsins.

Stærstu fjárfestingaverkefni næstu ára eru áframhald framkvæmda við snjóflóðavarnarmannvirki á Norðfirði og síðan á Fáskrúðsfirði og Eskifirði, framkvæmdir við nýjan leikskóla á Norðfirði, stækkun hafnarmannvirkja í Neskaupstað, uppbygging við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirð auk ýmissa minni verkefna.

Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands er höfð til hliðsjónar við gerð áætlunarinnar en spáin gerir ráð fyrir 3% verðbólgu á árinu 2014.

 

Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.


Attachments

Fjárhagsáætlun_2015-2017_fyrri umræða 31-10-2013.pdf Fjárhagsáætlun_2014_fyrri umræða 31-10-2013.pdf