HS Orka hf leggur fram árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2013


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2013. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

  • Hagnaður þriðja ársfjórðungs er 1.211 m.kr. en var 1.781 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2012. Afkoma fyrirtækisins á árinu batnar því sem þessu nemur og er uppsafnað tap eftir níu mánuði 2013 er 359 m.kr. samanborið við hagnað upp á 1.081 m.kr. á fyrstu níu mánuðum 2012.
     
  • EBITDA er alls um 1.907 m.kr. á fyrstu níu mánuðum 2013 en var 2.090 m.kr. á sama tímabili 2012.
     
  • Eiginfjárhlutfall 30. september 2013 er mjög sterkt eða 56%.
     
  • Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu fyrirtækisins nú eins og oft áður. Þar vegur þyngst breyting á virði afleiðna (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) sem er jákvætt um 907 m.kr. á þriðja ársfjórðungi en neikvætt um 3.043 m.kr. á tímabilinu janúar til september.  Á móti vegur gengishagnaður upp á 1.008 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.
     
  • EBITDA er áfram góð og tekjur hækka um 4% eða um 189 m.kr. og námu 5.142 m.kr. í lok september, en voru 4.954  m.kr. á sama tímabili árið 2012. Að móti hækkar rekstrarkostnaður um 17% eða sem nemur 601 m.kr. milli sömu tímabila. Nokkrar ástæður eru fyrir þessari aukningu tekna. Munar þar mest um aukna sölu á smásölumarkaði en lækkandi álverð dregur svo talsvert úr tekjuaukningunni á móti. Á kostnaðarhliðinni hafa orkukaup aukist nokkuð og flutningskostnaður hækkað vegna breytinga á gjaldskrá Landsnets. Ráðist var í viðhaldsboranir á tveimur holum á tímabilinu en engar slíkar boranir voru á sama tímabili í fyrra. Þá hefur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður hækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál á Grundartanga.  
     

Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860 5208.


Attachments

Financial Statements 30 September 2013.pdf