FÍ fasteignafélag gerir samning um kaup á fasteigninni Flatahrauni 12, Hafnarfirði, húsnæði Iðnskólans í Hafnarfirði.


FÍ fasteignafélg slhf., kt. 571212-0210, hefur gert samning um kaup á fasteigninni Flatahrauni 12 Hafnarfirði, fastanúmer 224-3269, sem er 4.450 fermetra hús með langtímaleigusamning við Iðnskólann í Hafnarfirði.

Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun FÍ og samþykki stjórnar félagsins að henni lokinni. Gert er ráð fyrir afhendingu og afsali á fyrsta fjórðungi 2014.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is