Tilkynning frá HS Veitum hf.


Þann 1. janúar 2014 taka gildi lög nr. 58/2008 um aðskilnað orkufyrirtækja í einkaleyfisrekstur og sérleyfisrekstur. Vegna þessarar lagasetningar var Hitaveitu Suðurnesja hf skipt upp 1. desember 2008 í HS Orku hf og HS Veitur hf. Júlíus Jónsson hafði gegnt starfi forstjóra Hitaveitu Suðurnesja frá 1. júlí 1992 og hafði þá frá 1982 verið fjármálastjóri fyrirtækisins. Eftir uppskiptinguna varð hann forstjóri HS Orku en gegndi í samræmi við verksamning milli HS Orku og HS Veitur einnig starfi forstjóra HS Veitna.

Við gilditöku laganna hefur verið ákveðið að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að fyrirtækin hafi hvort sinn forstjóra frá 1. janúar 2014 að telja. Það hefur orðið að samkomulagi að Júlíus láti af starfi forstjóra HS Orku á þessum tímamótum en hann verður þess í stað ráðinn forstjóri HS Veitna.

Reykjanesbæ, 6. desember 2013