FÍ fasteignafélag undirritar kaupsamning um kaup á fasteignum við Bernhöftstorfuna


FÍ fasteignafélag slhf kt. 571212-0210 hefur undirritað kaupsamning um kaup á fasteignum við Bernhöftstorfuna í Reykjavík.

Stjórn FÍ fasteignafélags slhf kt. 571212-0210 hefur samþykkt kaup á fasteignum við Bernhöftstorfuna í Reykjavík. Um er að ræða fasteignirnar Lækjargötu 3, Amtmannsstíg 1, og Bankastræti 2. Seljandi er Minjavernd hf. 700485-0139. Kaupsamningur hefur verið undirritaður.

Með kaupum á fasteignunum þá nánast tvöfaldast leigutekjur og EBITA félagsins á ársgrundvelli.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is