Ársreikningur FÍ fasteignafélags fyrir árið 2013


Ársreikningur FÍ fasteignafélags slhf fyrir árið 2013 var samþykktur af stjórn félagsins í dag 31. janúar 2014 og hefur verið skilað til Kauphallar.

Niðurstaða reikningsins er að tap varð á rekstri félagsins sem nemur 73.5 mkr. Um er að ræða fyrsta starfsár félagsins og leggst allur stofnkostnaður félagsins sem og kostnaður við skráningu skuldabréfa félagsins á rekstrarárið 2013. Fyrstu 5 fasteignir félagsins voru keyptar á árinu sen skila ekki fullum leigutekjum fyrr en á árinu 2014.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is


Attachments

FÍ Fasteignafélag slhf  - ársreikningur 2013 undirritaður.pdf