Skuldabréf FÍ Fasteignafélags slhf. - Birting lýsingar


Útgefandi: FÍ Fasteignafélag slhf., kennitala: 571212-0210, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

FÍ Fasteignafélag hefur birt lýsingu sem samanstendur af samantekt dagsettri 7. febrúar 2014, verðbréfalýsingu dagsettri 7. febrúar 2014 og útgefandalýsingu dagsettri 6. september 2013, sem uppfærð er í 8. kafla verðbréfalýsingar dagsettri 7. febrúar 2014. Lýsingin er birt í tengslum við fyrirhugaða töku viðbótarútgáfu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum FIF 13 01 til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Lýsingin er gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast á skrifstofu útgefanda að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík í 12 mánuði frá staðfestingu hennar. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu félagsins, http://www.fifasteignir.is/fi-fasteignafelag-slhf.html

Nafnverð útgáfu

Útgefandi hefur safnað áskriftarloforðum frá fjárfestum fyrir 9.925.000.000 íslenskra króna í samræmi við ákvæði samþykkta og skilmála félagsins. Á grundvelli fyrrgreindra áskriftarloforða skuldbinda fjárfestar sig til þess að fjárfesta í i) hlutabréfum og ii) skuldabréfum útgefnum af útgefanda. Útgefanda mun þannig vera heimil útgáfa skuldabréfa á grundvelli áskriftarloforðanna fyrir allt að 7.940.000.000 íslenskra króna. Áður hafa verið gefin út 414.661.198 kr. að nafnvirði og viðbótarútgáfa nú er 980.920.897 kr. að nafnvirði. Heildarfjárhæð nýttrar heimildar er því 1.395.582.095 íslenskra króna.

Áætluð taka skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf.

Sótt hefur verið um töku bréfanna til viðskipta samhliða útgáfu þeirra. Áætlað er að NASDAQ OMX Iceland hf. taki til viðskipta seld skuldabréf að nafnvirði 980.920.897 íslenskra króna 11. febrúar 2014.

Skilmálar skuldabréfanna

Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 5,0% vexti. Vextir greiðast fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember, af verðtryggðum höfuðstól, en höfuðstóll greiðist á lokagjalddaga þann 1. ágúst 2028. Útgáfudagur bréfanna var 20. júlí 2013. Fyrsti greiðsludagur vaxta er 1. ágúst 2014.

Auðkenni skuldabréfaflokksins

Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ OMX Iceland hf. er FIF 13 01, ISIN númer bréfanna er IS IS0000022770. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í 1. kr. nafnverðseiningum.

Reykjavík, 10. febrúar 2014
Stjórn FÍ Fasteignafélags slhf.


Attachments

Tilkynning FÍ slhf  - birting lýsingar 10022014.pdf