Fréttatilkynning um ársuppgjör Farice fyrir árið 2013.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 6,7 milljónir evra og jókst um 72,4% frá fyrra ári. Heildartekjur félagsins námu 12,3 milljónum evra og jukust um 20,7% frá fyrra ári. Kostnaður lækkaði um 11,5%. Handbært fé frá rekstri fór úr 1,3 milljónum evra í 4,3 milljónir evra.
Fjármagnskostnaður var 6,3 milljónir evra sem er aukning um 4,1 milljónir evra miðað við árið 2012 sem skýrist alfarið af styrkingu íslensku krónunnar en helsta lán félagsins er í íslenskum krónum. Afskriftir voru 7,6 milljónir evra og tap félagsins 7,2 milljónir evra sem skýrist fyrst og fremst af háum afskriftum og reiknuðum gengisbreytingum.
Áfram er gert ráð fyrir bata í rekstri og félagið er í skilum með öll lán.
Farice ehf. er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd og er hluti af innviðum Íslands og ein af grunnstoðum íslensks samfélags. Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og býr þannig til samskiptakerfi fyrir Ísland sem tengist öðrum samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu.
Eins og á síðasta ári gekk kerfisrekstur félagsins vel og ekkert rof varð á sambandi Íslands við umheiminn. Endabúnaður sæstrengja félagsins var endurnýjaður á síðasta ári sem margfaldar flutningsgetu kerfisins og félagið því vel í stakk búið til að mæta þörf fyrir aukna bandvídd gagnavera og almennra notenda.
Frekari upplýsingar:
Ómar Benediktsson 585 9701