Ríkisútvarpið - yfirlýsing Landsbankans


Ríkisútvarpinu ohf. hefur í dag borist yfirlýsing Landsbankans hf. um að bankinn muni ekki á yfirstandandi rekstrarári félagsins neyta heimilda í lánssamningum aðila til að gjaldfella lán samkvæmt þeim, fari bókfært eiginfjárhlutfall undir 8%.

Áréttað er í yfirlýsingu bankans að hún taki eingöngu til yfirstandandi rekstrarárs, sem lýkur í ágústlok og að hún hindri ekki beitingu vanefndaúrræða af öðrum ástæðum er fram kynnu að koma.