Mosfellsbær - Ársreikningur 2013

AFGANGUR AF REKSTRI MOSFELLSBÆJAR


Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 var lagður fram í bæjarráði í dag og honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 

 

Rekstur Mosfellsbæjar gekk vel á árinu 2013 og var rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði  um 549 milljónir sem er um 8% af tekjum. Niðurstaðan er í samræmi við fjárhagsáætlun. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var afgangur af rekstri bæjarins um 31 milljónir eða 0,4% af tekjum.

 

Íbúar Mosfellsbæjar voru 9.075 um síðustu áramót og hafði fjölgað um 1,1% á milli ára.

 

Hófleg skuldsetning

Kennitölur úr rekstri bera vott um trausta stöðu bæjarsjóðs. Veltufé frá rekstri eru 701 milljón sem eru 10% af rekstrartekjum. Eigið fé nemur 3.952 milljónum og er eiginfjárhlutfall 29%. Skuldaviðmið er 126% sem er vel innan þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum.

 

83% af skatttekjum fara í fræðslu-, félags- og íþróttamál

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 2.679 milljónir á árinu 2013 eða helmingur af skatttekjum. Til félagsþjónustu var veitt 1.112 milljónum og eru þar meðtalin málefni fatlaðs fólks. Íþrótta- og æskulýðsmál eru þriðja stærsta verkefni bæjarins en til þeirra mála var varið um 633 milljónum.

 

Mikil uppbygging í Mosfellsbæ

Um 1.664 milljónum var varið í framkvæmdir á árinu 2013 til þess að styðja við þann vöxt og þá uppbyggingu sem er í sveitarfélaginu.  Stærstu framkvæmdirnar voru bygging framhaldsskólans í Mosfellsbæ sem tók til starfa í ársbyrjun 2014, bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis sem vígð var sumarið 2013, bygging nýs íþróttahúss, leikskóla og þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða. Á árinu var verulegum fjármunum jafnframt varið í viðhald og endurbætur á skólahúsnæði og íþróttaaðstöðu í bænum.

 

 

Reikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 9. apríl og til síðari umræðu 23. apríl.

 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 862 0012


Attachments

Ársreikningur Mosfellsbær 2013 með áritun bæjarráðs.pdf