Breytingar á framkvæmdastjórn Landsbréfa


Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa hf., hefur sagt starfi sínu lausu hjá félaginu. Á stjórnarfundi sem haldinn var fyrir opnun markaða í dag, þann 7. apríl 2014 var tekin ákvörðun um að Hermann Már Þórisson, sem gengt hefur stöðu staðgengils framkvæmdastjóra Landsbréfa hf. verði framkvæmdastjóri félagsins þar til annað verður ákveðið.

Frekari upplýsingar gefur stjórnarformaður félagsins, Sigurbjörn Gunnarsson í síma 693- 2207.