Ársreikningur Fjarðabyggðar 2013 tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn


Fimmtudaginn 10. apríl 2013 fer fram fyrri umræða í bæjarstjórn Fjarðabyggðar um ársreikning bæjarfélagsins fyrir árið 2013. Ársreikningurinn hefur verið áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 8. maí næstkomandi.

Rekstrarniðurstaða ársins hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð um 938 millj. kr. og rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 286 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða, án afskrifta og fjármagnsliða, hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð sem nam 1.465 millj. kr. á árinu. Þar af var rekstrarniðurstaða í A hluta 623 millj. kr. Framlegð eða EBITDA nam 28,3% hjá samstæðu og 16,4% í A hluta.

Rekstrartekjur, samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins, námu samtals 5.184 millj. kr. en þar af námu rekstrartekjur A hluta 3.811 millj. kr. Til samanburðar voru rekstrartekjur samstæðu 4.899 millj. kr. árið 2012.

Rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, í samstæðu A og B hluta námu 4.129 millj. kr. og þar af voru rekstrargjöld A hluta 3.405 millj. kr. Breyting launa og launatengdra gjalda í samstæðu nam 1,2% eða um 26 millj. kr. á milli áranna 2012 og 2013. Annar rekstarkostnaður samstæðu hækkar um 8,4% á milli ára..

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur, í samstæðu A og B hluta, námu 100 millj. kr. samanborið við 482 millj. kr. árið 2012. Gengishagnaður vegna styrkingar íslensku krónunnar nam 85 millj. kr. á árinu og skuldaleiðréttingar vegna erlendra lána námu 286 millj. kr.

Fjárfesting í samstæðu A og B hluta umfram söluverð rekstrarfjármuna, nam samtals 526 millj. kr. á árinu 2013 samanborið við 490 millj. kr. árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru vegna hafnarmannvirkja og vatsveitu.

Afborganir langtímalána námu 815 millj. kr. á árinu og afborganir leiguskuldbindinga namu 980 millj. kr. á árinu eða samtals 1.795 millj. kr. Tekin voru ný langtímalán á árinu að upphæð 725 millj. kr. Handbært fé lækkaði á árinu 245 millj. kr. á árinu og nam 671 millj. kr. í árslok 2013.

Eignir sveitarfélagsins voru í lok árs 2013 samtals að fjárhæð 11444 millj. kr., þar af 10.183 millj. kr. fastafjármunir. Langtímaskuldir við lánastofnanir eru 5.838 millj. kr., leiguskuldir 930 millj. kr., skammtímaskuldir 1.158 millj. kr. og lífeyrisskuldbinding 1.699 millj. kr. Skuldir samstæðunnar lækka milli ára um 1.126 millj. kr.

Eigið fé samstæðu var 1.819 millj. kr. í árslok 2013 samanborið við 530 millj. kr. í árslok 2013. Breyting á eigin fé skýrist af rekstrarniðurstöðu ársins, endurskipulagningu skulda og endurmati lóða og lendna að fjárhæð 351 millj. kr.

Skuldaviðmið Fjarðabyggðar og stofnana er um áramótin 2013, 169,7% en var 197,9% um áramótin 2012. Skuldahlutfall Fjarðabyggðar er á sama hátt 185,7% um áramótin en var 219,5% 2012. Samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga skal hlutfallið ekki vera hærra en 150% en frestur var veittur í sveitarstjórnarlögum til ársins 2022 um að ná þessu viðmiði. Fjarðabyggð stefnir samkvæmt fjárhagsáætlun að því að skuldaviðmiðið verði komið niður fyrir 150% árið 2017.

Í ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2013 kemur vel fram styrkur Fjarðabyggðar og er ekkert sem bendir til annars en að tekjugrunnur sveitarfélagsins haldi áfram að eflast og styrkjast. Skuldsetning Fjarðabyggðar er engu að síður yfir viðmiðunum og vinna þarf áfram að rekstrarlegri hagræðingu þó góðum árangri hafi verið náð í því að ná skuldaviðmiði niður og jafnvægi í rekstri til skemmri og lengri tíma. Sterkur tekjugrunnur, sem mótast meðal annars af sterkum atvinnugreinum í sjávarútvegi, áliðnaði og þjónustu, gefur hinsvegar væntingar um kraftmikið samfélag til framtíðar.

 

Nánari upplýsingar veita Páll Björgvin Guðmundson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.

 

 

 


Attachments

Ársreikningur Fjarðabyggðar 2013 fyrri umræða áritaður.pdf