Helgi Þór Arason ráðinn framkvæmdastjóri Landsbréfa


Stjórn Landsbréfa hf. hefur ráðið Helga Þór Arason sem framkvæmdastjóra félagsins.

Helgi Þór Arason hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði en undanfarin ár hefur hann gegnt starfi forstöðumanns Markaðsviðskipta í Landsbankanum hf.

Helgi nam viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stefnir á að ljúka MBA prófi frá sama skóla nú í vor. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum sbr. 53. gr. laga um fjármálafyrirtæki.

Helgi hefur störf þann 5. júní næstkomandi, en fram að þeim tíma mun Hermann Már Þórisson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Landsbréfa til bráðabirgða, vera framkvæmdastjóri félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörn Jón Gunnarsson, stjórnarformaður Landsbréfa hf. í síma 693 2207.