Niðurstöður aðalfundar Reita II


Aðalfundur Reita II ehf. var haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2014 á skrifstofu félagsins í Reykjavík. 

Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

  1. Ársreikningur vegna ársins 2013 var samþykktur.
  2. Samþykkt var tillaga um að greiða ekki út arð vegna ársins 2013.
  3. Samþykkt var tillaga um að starfskjarastefna félagsins verði sú sama og hjá móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf.
  4. Aðalfundur kaus KPMG ehf. sem endurskoðunarfélag Reita II ehf. til næsta árs.
  5. Samþykkt var tillaga um að stjórnarmenn fái áfram enga þóknun fyrir störf sín.