Landsbréf - Frestun viðskipta með hlutdeildarskírteini


Landsbréf hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins tók þá ákvörðun kl. 9.30 í morgun að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum Landsbréfa sem eiga skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði. 

Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva viðskipti með skuldabréf útgefin af  Íbúðalánasjóði.

 

Sjóðirnir sem um ræðir eru:

 

Landsbréf - Markaðsbréf

Landsbréf – Eignabréf

Landsbréf – Einkabréf B

Landsbréf – Einkabréf C

Landsbréf – Einkabréf D

Landsbréf – Safnbréf 1

Landsbréf - Sparibréf stutt

Landsbréf - Sparibréf meðallöng

Landsbréf – Sparibréf löng

Landsbréf - Sparibréf verðtryggð