Landsbréf hf. - Opið fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini


Stjórn Landsbréfa hf. tók þá ákvörðun kl. 9.00 í morgun að opna aftur fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum í rekstri Landsbréfa sem eiga skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar þess að opnað hefur verið fyrir viðskipti með öll skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði.

 

Sjóðirnir sem um ræðir eru:

 

Landsbréf - Markaðsbréf

Landsbréf – Eignabréf

Landsbréf – Einkabréf B

Landsbréf – Einkabréf C

Landsbréf – Einkabréf D

Landsbréf – Safnbréf 1

Landsbréf - Sparibréf stutt

Landsbréf - Sparibréf meðallöng

Landsbréf – Sparibréf löng

Landsbréf - Sparibréf verðtryggð