FÍ Fasteignafélag - Tilkynning um viðauka, dags. 2. júlí 2014, við lýsingu dags. 19. júní 2014


Útgefandi: FÍ Fasteignafélag slhf., kennitala: 571212-0210, Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík.

FÍ Fasteignafélag hefur birt viðauka, dags. 2. júlí 2014, við lýsingu dagsetta 19. júní 2014. Viðaukinn er birtur í tengslum við fyrirhugaða töku viðbótarútgáfu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum FIF 13 01 til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Viðaukinn hefur verið staðfestur af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Viðaukinn og lýsingin eru gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af viðaukanum og lýsingunni má nálgast á skrifstofu útgefanda að Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík í 12 mánuði frá staðfestingu. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu félagsins, http://www.fifasteignir.is/fi-fasteignafelag-slhf.html