REG3A fjármögnun : Árshlutareikningur vegna ársins 2014


REG3A fjármögnun gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. í ágúst 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2014 fyrir fagfjárfestasjóðinn REG3A fjármögnun.

  • Hagnaður sjóðsins á fyrri árshelmingi 2014 nam 35 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam 535 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30.06.2014 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.


Attachments

REG3A fjármögnun árshlutareikningur 30.06.2014