Tímabundin undanþága afturkölluð


Með vísan til fréttatilkynningar Arion banka frá því fyrr í dag og að höfðu samráði við viðskiptavaka, MP banka, hefur Arion banki ákveðið að afturkalla tímabundna undanþágu á skyldum hans á eftirmarkaði. Hafa skyldur viðskiptavaka skv. gildandi samningi milli viðskiptavaka og Arion banka, vegna sértryggðra skuldabéfa bankans, tekið gildi á ný.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s. 856 7108.