REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Í janúar 2014 gaf REG3A fjármögnun út skuldabréf, REG3A 14 1, til fjármögnunar á lánssamningi við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. þar sem til tryggingar eru m.a. safn fasteigna í eigu Regins ativnnuhúsnæðis. Samkvæmt þeim lánssamningi er Reginn atvinnuhúsnæði heimilt að gera breytingar á veðandlagi svo lengi sem önnur sambærileg veð komi í staðinn. Slíkt þarfnast þó samþykkis REG3A fjármögnunar sem lánveitanda.

Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að fá að selja Lóuhóla 6 109 Reykjavík, fastanr. 204-9258, og í staðinn verði sett að veði Funahöfði 19 110 Reyjavík, fastanr. 204-3048 og 225-3695.  Uppreiknað virði Lóuhóla 6 til viðmiðunar í lánssamnigi er um 270 m.kr. og er virði þeirra eignar sem kemur í staðinn sambærilegt samkvæmt óháðum matsaðila. REG3A fjármögnun hefur samþykkt ofangreinda breytingu á veðandlagi í samræmi við skilmála lánssamnings og útgefinna skuldabréfa REG3A 14 1.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.