Hagar hf. hafa í dag undirritað nýjan lánssamning við Arion banka hf. sem tryggir langtímafjármögnun félagsins. Áður var félagið með lánssamning við bankann sem var á gjalddaga í október 2015, með framlengingarheimild til fjögurra ára.
Hér má sjá helstu atriði samningsins:
- Upphæð lánssamningsins er kr. 4.300.000.000,- en mánaðarlegar afborganir eru óbreyttar frá fyrri samningi.
- Gjalddagi samningsins er í október 2019, með framlengingarheimild til maí 2021.
- Lánssamningurinn ber breytilega, óverðtryggða millibankavexti (REIBOR) að viðbættu álagi, sem lánveitandi hefur heimild til að endurskoða árlega.
- Lánskjör hins nýja lánssamnings eru hagstæðari fyrir félagið.
- Félagið hefur rétt til að greiða lánið upp hvenær sem er á lánstímanum, án kostnaðar.
- Búið er að létta nokkuð á skuldbindingum félagsins og fjárhagslegum skilyrðum í nýjum lánssamningi.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.