Standard & Poor's breytir horfum á lánshæfiseinkunn Arion banka úr stöðugum í jákvæðar


Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) hefur staðfest BB+ lánshæfiseinkunn Arion banka og breytt horfum úr stöðugum í jákvæðar.

Breytingin er gerð í kjölfar þess að S&P hefur uppfært efnahagslega áhættuþætti fyrir Ísland úr stöðugum í jákvæða auk þess sem þeir telja líklegt að draga muni enn frekar úr efnahagslegu ójafnvægi hér á landi. S&P telur þannig horfur fyrir fjármálamarkaðinn á Íslandi jákvæðar auk þess sem líklegt sé að gæði eigna í fjármálakerfinu haldi áfram að aukast. Í júlí breytti S&P horfum sínum fyrir lánshæfi íslenska ríkisins úr stöðugum í jákvæðar.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

Íslenskt efnahagslíf hefur styrkst undanfarin misseri og við sjáum þess merki á öllum helstu mælikvörðum. Arion banki hefur einnig styrkst ár frá ári og nýtur þess að vera með trausta eiginfjár- og lausafjárstöðu auk sterkrar markaðsstöðu á Íslandi. Þessi ákvörðun Standard & Poor‘s er því staðfesting á fjárhagslegum styrk bankans og jákvæðum framtíðarhorfum í íslensku efnahagslífi.

 
Nánari upplýsingar veita:

Bára Mjöll Þórðardóttir, fjárfestatengill Arion banka, bara.thordardottir@arionbanki.is,
s. 444 7159.

Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is,
s. 444 7108.

 


Attachments

Icelandic Banks On Positive Outlook.pdf