Slit verðbréfasjóðsins Landsbréf LREAL


Stjórn Landsbréfa hf. samþykkti á fundi sínum í dag 23. október 2014 að verðbréfasjóðnum Landsbréf - LREAL skuli slitið og hlutdeildarskírteini sjóðsins afskráð úr Kauphöll. Slitin verða framkvæmd miðað við 20. nóvember 2014 og verður því síðasti dagur viðskipta með hlutdeildarskírteini sjóðsins þann 18. nóvember 2014.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa í síma 821 2086.