Áhrif endurfjármögnunar á Reiti II ehf.


Eftir endurfjármögnun Reita fasteignafélags hf. í árslok 2014 hefur móðurfélagið lagt dótturfélagi sínu, Reitum II ehf., til aukið hlutafé. Í kjölfar aukningar hlutafjár og uppgreiðslu lána nema skuldir Reita II ehf. 1.105 millj. króna samanborið við 19.484 millj. kr. í árslok 2013.  

Reitir II ehf. uppfylla allar kvaðir í lánasamningum við lánveitendur að endurfjármögnun lokinni.

Reitir II á og rekur 17 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 8 dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Upplýsingar um samstæðu Reita fasteignafélags má finna á www.reitir.is.

Frekari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, í síma 669 4416 eða í netfanginu einar@reitir.is.