Ársreikningur Landsbréfa hf. 2014

188 milljóna króna hagnaður á árinu 2014


Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2014.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 188 milljónum króna á árinu 2014, samanborið við 187 milljóna króna hagnað fyrir rekstrarárið 2013.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.104 milljónum króna samanborið við 969 milljónir króna rekstrarárið 2013. 
  • Eigið fé Landsbréfa í árslok nam um 1.832 milljónum króna samanborið við 1.644 milljónir króna í lok árs 2013.
  • Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 53,76%, en má lægst vera 8%.
  • Í lok tímabilsins voru í rekstri Landsbréfa 31 sjóður og félög um sameiginlega fjárfestingu.
  • Starfsmönnum voru 18 í lok árs.
  • Eignir í stýringu voru í árslok um 111 milljarðar króna samanborið við um 110 milljarða árið áður. Á árinu luku Landsbréf við umfangmikil verkefni sem m.a. fólust í úrvinnslu eigna Horns fjárfestingafélags ehf. sem slitið var í árslok. Við það hurfu úr stýringu rúmir 12 milljarðar, en þrátt fyrir það jókst heildarfjárhæð eigna í stýringu milli ára. Alls eru um 12 þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í sjóðum eða í eignastýringu hjá Landsbréfum.
  • Ávöxtun sjóða Landsbréfa var almennt góð á árinu 2014.

Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu 2014 og skilaði félagið ágætum hagnaði eða 188 milljónum króna, sem svarar til tæplega 10,3% arðsemi eigin fjár. Eftir mikla vöruþróun og öran vöxt á árinu 2013 má segja að árið 2014 hafi einkennst af stöðugleika þar sem leitast var við að skerpa línur í rekstri félagsins. Ákveðið var að slíta nokkrum sjóðum sem lítil eftirspurn hafði reynst eftir eða sameina þá öðrum sjóðum félagsins en meiri áhersla lögð á að þróa áfram  þá sjóði sem fjárfestar hafa helst sýnt áhuga. Af nýjum sjóðum má nefna fagfjárfestasjóðinn Brunn vaxtarsjóð slhf., sem mun fjárfesta í sprota- og nýsköpunarverkefnum. Vinna við fjármögnun hans fór að mestu leyti fram á árinu 2014, en lauk í byrjun árs 2015.

 

Ávöxtun sjóða Landsbréfa var góð á árinu 2014

Skuldabréfasjóðir Landsbréfa  skiluðu góðum árangri á árinu og sjóðurinn Landsbréf – Sparibréf óverðtryggð sýndi samkvæmt óháðu vefsíðunni www.sjodir.is, bestu nafnávöxtun allra ríkisskuldabréfasjóða á árinu eða 10,2%.. Það er fjórða árið í röð sem Landsbréf ná besta árangrinum við stýringu ríkisskuldabréfasjóða. Aðrir skuldabréfasjóðir gáfu einnig góða ávöxtun í samanburði við sambærilega sjóði. Skuldabréfasjóðir félagsins minnkuðu lítilsháttar sem á sér þá skýringu helsta að fjárfestar færðu sig í auknum mæli úr skuldabréfum í hlutabréf á árinu. Innlendir hlutabréfasjóðir Landsbréfa stækkuðu um 14,6% á árinu og skiluðu þeir allir góðri ávöxtun sem var umfram skilgreind viðmið. Heildarstærð þeirra í árslok var 16,5 milljarðar króna samanborið við 14,4 milljarða árið áður.  

 

Umsvif tengd framtaksfjárfestingum voru veruleg á árinu 2014. Eignir í umsýslu á þessu sviði námu alls 42,3 milljörðum króna í lok árs. Framtakssjóðurinn Horn II slhf. og ferðasjóðurinn Landsbréf – ITF I slhf. stóðu fyrir umtalsverðum fjárfestingum á árinu. Á árinu 2014 var lokið við úrvinnslu á eignasafni Horns fjárfestingarfélags ehf. sem Landsbréf hafa haft umsjón með á undanförnum misserum með mjög góðum árangri, en Horni var slitið í árslok.

 

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Sjóðir Landsbréfa skiluðu fjárfestum almennt góðri ávöxtun á árinu 2014 og rekstur Landsbréfa skilaði eigendum sínum góðri arðsemi. Landsbréf eru stolt af því að axla þá ábyrgð sem felst í því að að annast stýringu á fjármunum yfir 12 þúsund viðskiptavina. Hjá Landsbréfum starfar reynslumikið og hæft starfsfólk sem leitast við að setja hagsmuni viðskiptavina félagsins í fyrirrúm, enda góður árangur og ánægðir viðskiptavinir forsenda góðs rekstrar.“

 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri í síma 410 2511.


Attachments

Ársreikningur Landsbréfa 2014.pdf