Afkoma Reita II á árinu 2014


Stjórn Reita II ehf. samþykkti ársreikning 2014 þann 20. febrúar 2015.

Í kjölfar endurfjármögnunar samstæðu Reita hefur fjárhagsstaða Reita II ehf. gjörbreyst. Eigið fé í árslok nam 19.341 millj. kr. samanborið við 1.172 millj. kr. árið áður. Vaxtaberandi skuldir félagsins námu 1.105 millj. kr. samanborið við 19.484 millj. kr. árið áður. Tap var á rekstri félagsins sem rekja má til lækkunar á gangvirðismati fjárfestingareigna.

Lykiltölur:

  • Rekstrartekjur ársins 2014 námu 1.769 millj. kr. (2013: 1.699 millj.kr.)
  • Matslækkun fjárfestingareigna var 1.437 millj. kr. (2013: matshækkun 2.180 millj. kr.)
  • Tap ársins 2014 var 1.789 millj. kr. (2013: hagnaður 1.200 millj. kr.)
  • Heildareignir í árslok 2014 voru 20.808 millj. kr. (2013: 21.919 millj. kr.)

Reitir II ehf. er eitt af tíu félögum í samstæðu Reita fasteignafélags. Reitir II ehf. á og rekur 17 fasteignir. Tekjur Reita II eru um 21% af tekjum samstæðunnar. Upplýsingar um afkomu samstæðunnar ásamt fréttatilkynningu þar að lútandi má finna á www.reitir.is/fjarfestar.

Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 30. apríl 2015.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, í síma 575 9000 og netfanginu einar@reitir.is.


Attachments

Reitir II ehf ársreikningur 2014.pdf