Kópavogsbær - Nýr dómur Hæstaréttar um eignarhald Vatnsenda


Hinn 28. apríl 2014 var Kauphöll Íslands tilkynnt að þann dag hefði Kópavogsbæ verið birt stefna af hálfu hluta lögerfinga Sigurðar K. Hjaltested fyrrum ábúenda á Vatnsenda.

 

Er aðalkrafa stefnenda sú að Kópavogsbær greiði dánarbúi Sigurðar K. Hjaltedsted kr. 74.811.389.954 vegna eignarnáms á landi í Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Fjárhæð varakröfu er kr. 47.558.500.000. Málið var þingfest 5. nóvember 2014 en það hefur verið í fresti frá þeim tímapunkti. Ágreiningur aðila snýst m.a. um það hvort Kópavogsbæ hafi verið heimilt að ráðstafa eignarnámsbótum í umrætt sinn til þáverandi þinglýstra eigenda Vatnsenda. Kópavogsbær hefur frá upphafi talið að kröfur stefnenda eigi ekki við nein rök að styðjast.

 

Þegar framangreind stefna var birt Kópavogsbæ var til úrlausnar skiptastjóra í dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested hvert ráðstafa ætti beinum eignarrétti að jörðinni Vatnsenda. Síðdegis í gær komst Hæstiréttur Íslands að þeirri niðurstöðu, í máli nr. 751/2004, að beinn eignarréttur að jörðinni Vatnsenda skuli ráðstafa til lögerfingja Sigurðar K. Hjaltested eftir almennum reglum I. kafla erfðalaga 8/1962.

                                                                                    

Ekki liggur annað fyrir en að framangreint dómsmál hluta lögerfingja Sigurðar K. Hjaltested á hendur Kópavogsbæ muni nú verða fram haldið. Kópavogsbær mun taka til varna og krefjast sýknu af öllum kröfum stefnenda.