HS Veitur hf. ganga frá kaupum á eigin hlutabréfum og færa niður hlutafé


Á aðalfundi HS Veitna 18. mars var, eins og kynnt hefur verið, gengið frá kaupum á eigin hlutabréfum að nafnvirði kr. 262.129.000 og kaupvirði kr. 2.000.000.000. Aðalfundur samþykkti í framhaldinu að færa niður hlutafé fyrirtækisins um sömu upphæð þannig að nafnverð hlutafjár fyrirtækisins lækkar úr kr. 1.336.429.000 í kr. 1.074.300.000.

Til þess að fjármagna miklar áætlaðar fjárfestingar næstu tvö ár og ofangreind hlutabréfakaup hafa HS Veitur, eins og fram hefur komið, gefið út nýjan skuldabréfaflokk HSVE 15 01, að fjárhæð kr. 2.500.000.000 að nafnvirði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Vísað er til fyrri tilkynningar varðandi nánari upplýsingar um útgáfuna.

H.F. Verðbréf hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta. Eftirlitsaðili skuldabréfaflokksins HSVE 15 01 er Deloitte ehf. eins og fyrir HSVE 13 01. Fjármálaráðgjöf Deloitte aðstoðaði HS Veitur hf. við undirbúning fjármögnunarinnar.



Nánari upplýsingar veitir:
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf.
Sími: 860 5208