Mosfellsbær – Ársreikningur 2014


Ársreikningur 2014 lagður fram

 

Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2014 var lagður fram í bæjarráði í dag og honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 

 

Rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði var 312 milljónir sem er rúmlega 4% af tekjum. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrarhalli A og B hluta 72 milljónir eða tæplega 1% af tekjum. Veltufé frá rekstri er 468 milljónir eða rúmlega 6% af tekjum. Eigið fé í árslok nam 4.120 milljónum og eiginfjárhlutfall tæplega 28%. Skuldaviðmið er 128% sem er vel innan þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum.

 

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir sem skýrist helst af ytri kostnaðarþáttum sem reyndist erfitt að bregðast við á rekstrarárinu. Í því tilliti ber helst að nefna að kjarasamningsbundnar launahækkanir voru meiri en ráð var fyrir gert, veitt var meiri fjárhagsaðstoð en áður auk þess sem ófyrirséður halli varð á rekstri málaflokks fatlaðs fólks. Bæjarráð hefur samþykkt að fela bæjarstjóra að mynda teymi úr hópi framkvæmdastjórnar til að yfirfara fjárhagsáætlun ársins 2015. Í þeirri vinnu verði lagt mat á hvaða atriði þarf að endurskoða í fjárhagsáætlun ársins með tilliti til fyrirliggjandi rekstrarniðurstöðu ársins 2014.

 

Íbúar Mosfellsbæjar voru 9.300 um síðustu áramót og hafði fjölgað um 2,5% á milli ára. Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins og þar störfuðu 649 starfsmenn í 533 stöðugildum á árinu 2014.

 

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 2.981 milljónir eða 52% skatttekna. Til félagsþjónustu var veitt 1.269 milljónum og eru þar meðtalin málefni fatlaðs fólks. Íþrótta- og æskulýðsmál eru þriðja stærsta verkefni bæjarins en til þeirra mála var varið um 662 milljónum. Samtals er því 85% skatttekna Mosfellsbæjar varið til fræðslu-, félagsþjónustu- og íþróttamála.

 

Reikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag og til síðari umræðu 6. maí næstkomandi.

 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 862 0012


Attachments

Ársreikningur Mosfellsbæjar 2014 með áritun bæjarráðs.pdf